30.3.2009 | 19:14
LúxusHugleiðing
Smá hugleiðing rétt fyrir mánaðamót.Þá er komin mánudagur og nýr mánuður að byrja,sem er mjög gott mál því að það er útborgunardagur á miðvikudaginn.Þá getur maður farið að útbíta aurunum í skuldir og afgangur í matinn.Endar ná engan veiginn saman,hvernig væri ef maður reykti og skemmi sér hum?Það væri bara ekki hægt í dag,minn lúxus er að hafa strákinn minn í skóla.Já það er bara staðreynd sonur minn er minn lúxus hugsa sér ótrúlegt en svona er það nú bara.Hann er minn lúxus sem ég sé sko alsekki eftir að setja mínar krónur í.Æ Ég elska og dýrka börnin mín,bara smá lúxus hugleiðing um þessi mánaðamót hehe
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ elsku Guðrún mín.
Já, mánaðarmótin nálgast og eins og þú segir að þá fer einhver 9/10 í reikninga og föst útgjöld mánaðarins en restin fer í mat og annað slíkt. Ég get t.d. aldrei leyft mér að kaupa föt eða neitt slíkt. Þetta er ömurlegt en svona er þetta nú bara einu sinni. Við lifum í þessu líka flotta "velferðar þjóðfélagi". Það er nú meira "velferðar" þjóðfélagið. Ég meina, ég næ t.d. aldrei endum saman í hverjum mánuði. Það er nú bara þannig. Ég borga 100.000 kr,- í reikninga og restin fer í mat og annað slíkt. Ég hef aldrei efni á því að kaupa mér föt eða neitt slíkt. Þetta er náttúrulega bara ömurlegt.
En hafðu það sem best vinkona og njóttu lífsins. Ég er ekkert að hressast en vonandi kemur það allt saman. Hafðu það sem best Guðrún mín.
Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 19:50
Já elsku Valli minn það er ömurlegt þetta þjóðfélag í dag.Allt svo dýrt sama hvað það er,en Guð er með okkur hann er góður og vil okkur allt það besta.Við náum okkur á strik aftur vertu viss ég mun biðja fyrir þér valli minn.
Blíðlegt blíðu knús á þig kæri minn
Hafðu það sem best
Guðrún Pálína Karlsdóttir, 30.3.2009 kl. 21:19
Já elsku Gunna mín ,það er alltaf gott að geta staðið í skilum ,en það er eflaust mörgum erfitt að gera af lágum tekjum ,þar sem allt hefur hækkað ,og krónan hefur enn og aftur rýrnað síðustu dagana,og þá hækkar allt í kjölfarið nema launin . Jú unga fólkið okkar er framtíðin ,en skelfilegt er þó að ungafólkið okkar kemur til með að vera í skuldahafti eftir bankahrunið hérna ,það er sorgleg tilhugsun að hvítvoðungar og ófædd börn skuli fæðast inn í skuldir ,það er einsgott að þessar sálir séu sterkar og kunni að spila rétt úr .Þvílíkt hyldýpi sem við erum komin í bara fyrir afglöp og hræki fárra manna ,það er skítt að þurfa að súpa seiðið af því sem aðrir hafa álpað okkur í . En þetta mun sigrast með seiglunni ,ef við höldum vel á öll saman .
Jón Reynir Svavarsson (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 23:08
Kaupmátturinn fer rýrnandi með hverjum mánuðinum og ég skil þig vel Guðrún. Við verðum að vona að ástandið fari að lagast sem fyrst.
Hilmar Gunnlaugsson, 31.3.2009 kl. 01:45
Mér finnst þú vera dugleg að geta veitt drengnum þínum skólagöngu.
egvania, 31.3.2009 kl. 19:13
Það er hrikalegt alstaðar í þjóðfélæginu og öllum heimilum.Og einsog þið segið þá er bara að vona að ástandið lagist hér áður en við förum að missa unga fólkið okkar úr landinu Það bara má ekki gerast.Hilmar og Jón
Þakka þér fyrir það Ásgerður geri allt sem ég get þar
Þakka fyrir kvittið hafið þið það sem best
Og gangi okkur öllum sem best í framtíðinni
Guðrún Pálína Karlsdóttir, 31.3.2009 kl. 20:49
Innlit og kvitt
egvania, 3.4.2009 kl. 15:39
Gaman að sjá þig blogga, þú ert duglegri en ég vinkona
Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir, 6.4.2009 kl. 19:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.